Allir Natracare tappar eru eingöngu gerðir úr lífrænt vottaðri 100% bómull og eru einu tapparnir í heiminum í dag úr bómull sem er að fullu lífrænt vottuð. Þeir eru ekki klórbleikjaðir og konur geta treyst því að þeir innihaldi ekki nein gerviefni, svo sem reion eða viðbótaríðefni á borð við bindiefni eða yfirborðsvirk efni. Með lífrænt vottaðri bómull er ekki hætta á beinum áhrifum af leifum skordýraeiturs og tilbúins áburðar sem notuð eru á hefðbundna bómull.
Þróun Natracare tíðatappa var beint svar við álitaefnum í heilbrigðis- og umhverfismálum varðandi díoxínmengun af völdum klórbleikingar, víðtækrar notkunar skordýraeiturúðunar á bómull í hefðbundinni ræktun og notkunar reions og annarra gerviefna við framleiðslu tíðatappa.
Margar konur vita ekki að reion og blöndur reions og bómullar eru notuð í miklum mæli við framleiðslu á tíðatöppum. Venjulega er reion klórbleikjað og er hér um að ræða mjög ídrægar trefjar sem soga hratt upp tíðablóð, en geta jafnframt þurrkað upp náttúrulegu varnarslímhúðina í leggöngunum.
Díoxín er eitraður krabbameinsvaldur og er aukaafurð við allar klórbleikingaraðferðir, en er einnig að finna víða í umhverfinu í mismiklum mæli sem aukaafurð við skordýraúðun og í mengun frá brennsluofnum. Komið hefur í ljós að díoxín safnast upp í fituvefjum dýra, þar með töldum mönnum, og ætti því að valda konum verulegum áhyggjum. Af vísindaskýrslum sem birtar hafa verið má ráða að vaxandi vísbendingar eru um að jafnvel lág gildi díoxíns geti tengst krabbameini, legslímuvillu, litlum fjölda sæðisfrumna og bælingu á ónæmiskerfi. Þar sem búast má við að kona noti allt að 11.000 tappa á ævinni, getur verið að hún sé að valda sjálfri sér auknu díoxínálagi.