NatraCare

Dömubindi með vængjum

Forsíða : Vörur : Dömubindi með vængjum

Natracare Ultra bindi með vængjum eru eingöngu gerð úr lífrænt vottaðri 100% bómull og endurnýtanlegum og sjálfbærum plöntusellulósa. Þau eru algjörlega plastlaus og eins og allar Natracare vörur algjörlega klórlaus þar sem við notum ekki klórbleikingu í neinum framleiðsluferlum okkar. Plastlaus þýðir að í Natracare eru engin pólýetýlen, pólýprópýlen eða pólýakrýlat háídræg efni, en öll þessi efni geta ert húðina.

Konur geta treyst því að Natracare Ultra bindi með vængjum innihalda engin gerviefni, viðbótaríðefni svo sem bindiefni eða yfirborðsvirk efni, ilmefni eða litarefni og þar sem efnin eru lífræn og náttúruleg eru þau meira en 95% visthverf , þ.e. brotna niður í náttúrunni og mynda moltu. Ídræg miðja bindisins er gerð úr kvoðu sem er vottuð af FSC (Forest Stewardship Council) og þekjan sem er næst húðinni er úr lífrænt vottaðri 100% bómull. Hverju bindi er pakkað fyrir sig í visthverfa smápoka.


Fáanleg í 4 tegundum: Regular, Super, Long og Super Plus.

Ultra wings - Regular

Ultra wings - Regular

Henta fyrir vægar eða í meðallagi miklar blæðingar
Nánar
Ultra wings - Super

Ultra wings - Super

Með enn meiri rakadrægni fyrir fyrstu daga blæðinga
Nánar

 


 

Leitarvél
  • Banner