Orðið heilsa er komið af orðinu heill sem getur bæði þýtt óskertur og hraustur. Í lífsgæðum felst heildarnálgun á heilsu, bæði líkamlegri andlegri og félagslegri.
Margt sem við höfum ekki endilega stjórn á hefur áhrif á heilsuna, svo sem búseta, ástand umhverfisins, erfðaþættir, tekjur, tengsl og menntun. En það sem við setjum í og á líkamann, dagleg hreyfing okkar og hvernig við bregðumst við streitu, allt hefur þetta mikil áhrif á andlega og líkamlega vellíðan okkar.
Því er mjög brýnt að fræðast um það hvernig við megum öðlast og halda í sem besta heilsu og vellíðan á allan hátt.