NatraCare

Sérstaða Natracare

Forsíða : Sérstaða Natracare

Konur vilja nota vöru sem er lífræn og náttúruleg, svo einfalt er það, og með því að nota Natracare við persónulega umhirðu hafa þær það val. Veljirðu Natracare ertu að forðast hugsanlega snertingu við skordýraeitur, illgresiseyða og díoxínleifar, svitalyktareða, asóliti, plastefni og gerviefni.

Natracare tappar og blautklútar fyrir konur eru úr lífrænt vottaðri 100% bómull og eru eins og dömubindin og innleggin eingöngu gerð úr náttúrulegum efnum sem eru algjörlega laus við klór og viðbótar-, ilm- og plastefni.

 

Ástæðan fyrir því að svo margar konur velja Natracare…

…er sú að Natracare tappar og bindi eru klórlaus, gerð úr lífrænt vottaðri bómull og náttúrlegum visthverfum efnum og umfram allt vilja konur takmarka gerviefni, ónauðsynleg íðefni og viðbótarefni næst húðinni.

  • Algjörlega lausar við klór
    Mengun af völdum díoxíns er alvarlegt umhverfisvandamál og það mengar loft, vatn, jarðveg og plöntur og sest að í fitufrumum til langframa. Það myndast við ýmiss konar ferli í náttúrunni og iðnaði, að meðtalinni skordýraeiturúðun og klórbleikingu efna sem eru meðal annars notuð til að framleiða pappírsvörur á borð við þurrkur, dömubindi og tíðatappa. Þess vegna sjáum við til þess að Natracare vörur séu algjörlega lausar við klór (TCF).


  • Framleiddar úr lífrænni bómull
    Notkun skordýraeiturs er umfangsmikil í heiminum og skaðleg mönnum og umhverfi. Ef við veljum lífrænt stuðlar það að því að draga úr umhverfismengun og áhrifum díoxíns á menn. Þess vegna göngum við úr skugga um að Natracare tappar, Ultra bindi, innlegg og blautservéttur fyrir konur séu eingöngu gerðar úr lífrænt vottaðri 100% bómull.


  • Framleiddar úr náttúrulegum efnum
    Hjá konum með ofnæmi, ertingu, særindi og kláða á húð eru einkennin stundum verri meðan á blæðingum stendur. Margir kvensjúkdómalæknar ráðleggja þessum konum að breyta yfir í Natracare vörur úr hreinni bómull til þess að forðast gerviefni og íðefni sem algeng eru í vörum til persónulegrar umhirðu.
    Dregið hefur úr einkennum hjá mörgum eftir notkun á Natracare vörum vegna þess að þær eru án klórbleikingar og reions, bindiefna, plastefna, yfirborðsvirkra efna, resína, litarefna, smurefna og ilmefna. Natracare bindi innihalda ekki pólýakrýlat háídræg efni eða plastefni sem geta valdið ertingu þegar þau eru nálægt húð.


  • Vistvæn
    Á hverju ári er 45 milljörðum dömubinda fleygt einhvers staðar. Ef þeim væri raðað hverju á eftir öðru, næðu þau alla leið til sólarinnar og það þyrfti 100 metra djúpa og 100 metra breiða holu til að grafa þau öll. Flest dömubindi og blautservéttur eru full af gerviefnum svo sem plasti, en það þýðir að þau verða eftir í umhverfinu það sem eftir er, skaða náttúrulíf og menga úthöfin. Því göngum við úr skugga um að Natracare vörur séu 95 til 100% visthverfar, þ.e. að þær brotni niður í náttúrunni og myndi moltu.
Leitarvél
  • Banner