NatraCare

Algengar spurningar og svör

Forsíða : Af hverju Natracare? : Algengar spurningar og svör

Hvað er persónuleg umhirða kvenna og hvernig fer hún fram?

Persónuleg umhirða kvenna eða hreinlætisvernd eru orð notuð um vörur svo sem tíðatappa og dömubindi sem notaðar eru til að hlífa fötum við tíðablóði. Þarna er einnig átt við buxnainnlegg og blautþurrkur fyrir konur.
Tappar eru settir upp í leggöngin og má þrýsta þeim inn með löngutöng eða með því að nota sérstaka stjöku til uppsetningar úr plasti eða pappa. Lesa þarf vandlega leiðbeiningar með töppunum áður en þeir eru notaðir þar sem þeir hafa tengst ástandi sem nefnist eiturlost (Toxic Shock Syndrome). Flestir tappar sem seldir eru í búðum eru úr gerviefnum svo sem viskósa eða reioni eða blöndu reions, lítils háttar hefðbundinnar bómullar og pólýprópýlens. Natracare tappar eru aðeins gerðir úr lífrænt vottaðri 100% bómull.
Bindi eru höfð innan í nærbuxum og sitja föst með því að þau límast við buxurnar. Þau draga í sig blóðið eftir að það hefur runnið um leggöngin og út úr líkamanum. Hægt er að fá mismunandi gerðir binda eftir frásogshæfni (ídrægni). Flest bindi eru gerð úr gerviefnum svo sem pólýprópýleni og plasti og þá er notað háídrægt efni sem gert er úr jarðolíu og eru þau því ekki visthverf, þ.e. þau brotna ekki niður í náttúrunni eða mynda moltu. Natacare dömubindi eru eingöngu úr náttúrulegum efnum sem eru framleidd án þess að nota skaðlega klórbleikingu og eru meira en 95% visthverf, þ.e. brotna niður í náttúrunni og mynda moltu.
Buxnainnlegg eru valkostur fyrir konur. Þau má nota ásamt tíðatappa til frekara öryggis, í lok tíðablæðinga þegar blæðing er svo lítil að ekki er þörf á bindi eða tappa eða til þægindaauka á ferðalögum.


Því ætti ég að skipta út vörum til persónulegrar umhirðu?


Þú ættir að lesa vel það sem stendur á umbúðunum til að glöggva þig á því úr hverju tapparnir og bindin sem þú notar eru gerð. Flest eru þau úr gerviefnum sem eru bleikjuð með ertandi íðefnum sem kallast klórín og spilla umhverfi. Klórín mynda eiturefni í umhverfinu sem nefnast díoxín. Reyndu að komast hjá því að nota tappa úr gerviefnum svo sem reioni og viskósa og bindi með miklu plasti og gerviefnum sem fullyrt er að séu „bómullarlíki“ þar sem þau eru yfirleitt gerð úr gerviefnum sem er nánast ómögulegt að losna við úr umhverfinu. Margir kvensjúkdómalæknar ráðelggja tappa úr lífrænt ræktaðri bómull og bindi án plasts og íðefna til þess að takmarka hættuna á ertingu eða ofnæmisviðbrögðum af völdum gerviefna og íðefna.

Því eru Natracare tappar gerðir úr lífrænt ræktaðri bómull?


26% af skordýraeitri í veröldinni er úðað á bómull. Sýnt hefur verið fram á að skordýraeitur hefur skaðleg áhrif á náttúrulíf og menn og af þeim sökum hafa sífellt fleiri áhyggjur af notkun skordýraeiturs í landbúnaði og velja að kaupa lífrænar vörur þegar þess er nokkur kostur. Bómull sem ræktuð er á hefðbundinn hátt er úðuð með margs konar skordýraeitri sem losar eitur, að meðtöldu díoxíni, út í umhverfið og skilur eftir leifar í bómullinni.
Bómull er ræktuð víðs vegar um heim og í mörgum þriðja heims löndum eru allt að 70 af hundraði landbúnaðarverkamanna börn á aldrinum 5 til 15 ára og margir unglingar taka virkan þátt í skordýraeiturúðuninni. Auk þeirrar venju að úða bómull eru 50% af bómull í hefðbundinni ræktun erfðabreytt.
Skordýraeitur hefur tengst ófrjósemi, þunglyndi með sjálfsvígum og hræðilegri fæðingargöllum en orð fá lýst.
„Það er tími til kominn“, segir Moyra Bremner, „að við gerum okkur ljóst að með því að velja lífræna kostinn er ekki einungis um val á „lífsstíl“ að ræða, heldur spurning um líf framar dauða“. Lesa má grein hennar sem birtist fyrst í tímaritinu Ecologist.
Þegar bómull er lífrænt ræktuð er forðast að úða uppskeru með þessum skordýraeiturefnum og samkvæmt lífrænum stöðlum er bannað að nota erfðabreytta bómull. Natracare tappar eru eingöngu úr lífrænt vottaðri bómull vegna þess að við álítum þann kost öruggari og siðferðislega réttari. Lífrænn landbúnaður þar sem bannað er að nota erfðabreytt efni stuðlar að því að koma í veg fyrir yfirborðsrof á jarðvegi, bætir frjósemi jarðvegs, verndar grunnvatn og er orkusparandi.

 

Er latex í vörunum?


Natracare notar aldrei latex. Ef áletrunum á vörum til persónulegrar umhirðu kvenna er ekki fylgt eftir, er erfitt fyrir konur með latexofnæmi að komast að því að sum dömubindi og innlegg sem nú eru á markaði innihalda latex. Latex má nota til að gera vængi á bindum sveigjanlegri eða það má nota sem bindiefni í þekjunni á yfirborði binda og innleggja þar sem það er næst húðinni.

 

Þarf ég að nota lykteyði, blautþurrkur og bindi eða tappa með ilmi af því að persónuleg umhirða skiptir jú máli?


Leggöngin eru smávistkerfi í viðkvæmu jafnvægi. Leggöngin eru þakin verndandi og sjálfhreinsandi slímhúð. Í heilbrigðum leggöngum eru margar örverur, meðal þeirra mjólkurbakteríur sem stuðla að örlítið ísúrum aðstæðum sem koma í veg fyrir sýkingar með ýmsum sjúkdómsvöldum. Því er áríðandi að umbreyta ekki sýrustigi (pH) legganganna með notkun flestra sápu- og freyðibaðstegunda.
Margir lykteyðar og blautþurrkur fyrir konur innihalda ertandi íðefni og rotvarnarefni sem geta haft þurrkandi og ertandi áhrif og því á að reyna að forðast notkun þeirra. Ef þörf er á snyrtingu má reyna Natracare blautþurrkur úr lífrænni bómull með lífrænt vottuðum, nauðsynlegum olíum sem eru sýrustigsjafnaðar og visthverfar. Aldrei er þörf á að nota dömubindi eða tappa með lykteyði. Slíkt er ekki nauðsynlegt og ef þú átt í vanda sem læknir þarf að líta á, er fyrsta merkið oft breytingar á lykt í leggöngum og þessar vörur geta dulið fyrstu einkenni.
Meðan á tíðablæðingum stendur er mjög brýnt að þvo sér vel til að halda kynfærum hreinum og frísklegum til að koma í veg fyrir lykt af gömlu blóði. Skiptu um tappa og bindi reglulega og forðastu að nota stöðugt tappa. Notaðu til dæmis ekki tappa á nóttunni ef þú notar þá á daginn. Notaðu þá bindi í staðinn. Ef þú notar tappa á nóttunni skaltu ekki nota þá allan daginn líka. Breyttu til með því að nota dömubindi. Það stuðlar að því að koma í veg fyrir eiturlost (TSS, Toxic Shock Syndrome) og með því geturðu fylgst með tíðablæðingunum.


Af hverju er notað lífplast (Bioplastic) í bindum og innleggjum Natracare?


Plastið í bindum og innleggjum annarra framleiðenda kallast pólýetýlen, skammstafað PE. Það er gert úr jarðolíu sem er takmörkuð og mengandi orkulind. Til þess að búa til PE verður iðnaðurinn að nota alls konar skaðleg og mengandi efni. Tilbúið PE eyðist ekki. Það verður eftir í umhverfinu sem sjónmengun og skaðar náttúrlíf öldum saman. Þar sem dömubindi og innlegg þurfa að hafa þröskuld til að stöðva leka, valdi Natracare að nota algjörlega visthverft efni sem kallast lífplast (Bioplastic) og er gert úr plöntusellulósa. Það verkar á nákvæmlega sama hátt og PE plastefni, en brotnar niður í náttúrunni.

 

Á sumum bindum stendur „bómullarlíki“: Eru þau þá úr bómull?


Nei, þau eru ekki úr bómull og innihalda heldur ekki neinar bómullartrefjar. Með þessu orðalagi er verið að láta þig halda að þau séu úr bómull án þess að brjóta í raun lög um vörulýsingar. Þekjur úr „bómullarlíki“ eru úr gerviefnum.

 

Því er dúnkennd kvoða inni í bindum Natracare í stað bómullar?


Þótt Natracare noti lífrænt vottaða bómull í efsta lag binda og innleggja eru tvær góðar og gildar ástæður fyrir því að ekki er bómull í miðju bindanna:

  • Í fyrsta lagi er frásogshæfni bómullar í miðju bindis mjög lítil, einfaldlega vegna efnafræðilegra eiginleika trefjanna. Bómullartrefjar eru 70% kristallaðar, en aðeins 30% formlausar. Hins vegar er dúnkennd kvoða úr furutré 70% formlaus, en 30% kristölluð.
    Tegund formgerðar segir til um hve auðveldlega trefjarnar draga í sig vökva (hve formlaus hún er) og kristallaðir hlutar trefjar koma í veg fyrir frásog vökva. Til þess að frásogshæfni bindis eða innleggs sé sem mest þarf miðjan því að innihalda hátt hlutfall formlausra trefja þannig að vökvinn frásogist hratt og um alla miðjuna. Þetta er ekki á færi bómullar og þess vegna notar Natracare einungis algjörlega klórlausa, dúnkennda froðu í miðju dömubindanna og innleggjana, en vefur miðjuna inn í lífrænt vottaða 100% bómull.

 

  • Í öðru lagi veltur þetta á kolefnisstýringu. Allar plöntur draga í sig koltvísýring, en tré eru best til þess fallin því þau vinna marktækt meiri koltvísýring við ljóstillífun en minni plöntur vegna stærðar sinnar og þess hve ræturnar eru víðfeðmar. Í trjám er mun meira af „trjákenndum lífmassa“ til að varðveita koltvísýring en í minni plöntum og þau geta líka varðveitt kolefni í jarðvegi skóganna. Vegna þessa eru tré talin vera skilvirkustu „kolefnissvelgir“ náttúrunnar.
    Meðan tré er að vaxa dregur það hratt í sig koltvíoxíð úr andrúmslofti, einangrar það og skilar okkur aftur súrefni. Sjálfbær ræktun á skandinavískum mjúkviðartrjám stuðlar að því að aðskilja kolefni (einangra kolefni úr andrúmslofti).
    Natracare notar aðeins dúnkennda kvoðu úr hraðsprottnum, skandinavískum mjúkviðartrjám úr sjálfbærum, stýrðum, náttúrulegum skógum.

 

Úr hverju eru aðrir tíðatappar?


Ef þú ert ekki að nota Natracare lífrænt vottaða bómullartappa eru tapparnir sem þú notar sennilega klórbleikjaðir og annaðhvort gerðir úr 100% reioni eða blöndu bómullar úr hefðbundinni ræktun og reions. Ef þráðurinn til að draga tappann út er í lit hefur hann verið litaður, hugsanlega með asólitum, en við framleiðslu á þeim eru notaðir þungmálmar og því geta verið leifar af þungmálmum í þræðinum. Ef við gefum okkur að kona noti yfir 11.000 tíðatappa um ævina, ættu konur að gefa að því gaum út frá heilbrigðis- og umhverfissjónarmiðum úr hverju tapparnir eru.

Leitarvél
  • Banner