NatraCare

Af hverju Natracare til daglegra nota?

Forsíða : Af hverju Natracare? : Af hverju Natracare til daglegra nota?

Lífrænt og náttúrulegt eru grundvallarreglur Natracare sem veitir konum þægilegar og traustar vörur sem velja má til daglegra nota sem hluta af persónulegri snyrtingu.


Innleggin eru úr lífrænt vottaðri bómull og náttúrlegum sellulósaefnum sem eiga upptök sín í endurnýtanlegu og sjálfbæru umhverfi og eru meira en 99% visthverf , þ.e. brotna niður í náttúrunni og mynda moltu.

Natracare innlegg eru algjörlega klór- og plastlaus og eru eðlilegt val fyrir konur því með þeim má forðast gerviefni svo sem reion, plastefni á borð við pólýetýlen og pólýprópýlen, klórbleikingarefni sem losa eitruð díoxín, háídræg efni úr jarðolíu, latex og húðertandi efni ásamt íðefnum svo sem ilmefnum og litarefnum sem eru til staðar í svo mörgum öðrum vörum til persónulegrar umhirðu fyrir konur.


Mjúku og sterku blautþurrkurnar okkar úr lífrænni bómull eru baðaðar í lífrænum og náttúrulegum jurtakrafti og eru lausar við hreinsiefni, paraben, rotvarnarefni sem losa formaldehýð og önnur slík ertandi íðefni.

Þar sem Natracare notar ekki nein innihaldsefni úr dýrum og gerir ekki dýratilraunir henta blautþurrkurnar fyrir grænmetisætur sem neyta hvorki mjólkur né eggja (vegans). Þú mátt treysta því að gæðakröfur Natracare ná svo langt að þurrkurnar eru einvörðungu húðprófaðar á mönnum og það á sjálfboðaliðum.

Leitarvél
  • Banner