NatraCare

Af hverju Natracare tappar?

Forsíða : Af hverju Natracare? : Af hverju Natracare tappar?

Konur nú á tímum eru meðvitaðar um þörfina á að draga úr beinni snertingu við gerviefni, húðertandi efni og óþarfa íðefni og viðbótarefni. Því kunna konur að meta lífrænt vottaða tappa úr 100% bómull frá Natracare vegna þess að þeir eru þægilegir og veita trausta vörn en líka af umhyggju fyrir umhverfinu og ábyrgðar gagnvart því.


Natracare tappar eru eingöngu gerðir úr algjörlega lífrænt vottaðri 100% bómull. Þeir eru fáanlegir með mismunandi frásogshæfni, með eða án stjöku til uppsetningar, í samræmi við blæðingamagn og persónulegt val. Stjökurnar fyrir Natracare tappa eru úr algjörlega klórlausum pappa og ekki úr plasti. Ef þú ert að nota tappa sem settur er upp með plaststjöku getur verið að þú viljir vita að auk þess sem þær eru úr jarðolíuvörum, innihalda þær líka mýkiefni, en það er viðbótarefni sem gerir plast sveigjanlegt.

 

Allar vörurnar eru algjörlega klórlausar og konur geta treyst því að Natracare tappar innihalda engin gerviefni, svo sem reion eða pólýprópýlen eða nein viðbótaríðefni á borð við ilmefni, litarefni eða smurefni.

 

Með því að velja aðeins algjörlega lífrænt vottaða bómull er ekki hætta á beinum áhrifum af leifum skordýraeiturs, tilbúins áburðar, laufeyða og sveppadeyða sem algengt er að notuð séu við hefðbundna bómullarrækt. Natracare tappar eru úr 100% lífrænni bómull sem hefur fengið fulla lífræna vottun hjá GOTS (Global Organic Textiles Standard) á býlinu þar sem bómullin er ræktuð, í vinnslunni þar sem bómullin er hreinsuð, allt þar til hún er orðin að framleiðsluvöru. Með þessu er lífræna ferlinu fylgt algjörlega eftir svo tryggja megi að Natracare tapparnir sem þú kaupir séu í raun lífrænt vottaðir.


Sjálfstæð rannsókn sem gerð var í New York University Medical School gefur til kynna að notkun tappa úr 100% bómull geti dregið úr hættu á eiturlosti (Toxic Shock Syndrome) borið saman við tappa sem innihalda reion. Þessi rannsókn tók til Natracare tappa úr 100% bómull, en líka allra annarra fáanlegra vörumerkja á markaði þar sem tapparnir voru annaðhvort úr 100% reiontrefjum einum saman eða blöndu reions og bómullatrefja.

Leitarvél
  • Banner