NatraCare

Af hverju Natracare innlegg?

Forsíða : Af hverju Natracare? : Af hverju Natracare innlegg?

Í Natracare buxnainnleggjum er eingöngu lífrænt vottuð 100% bómull næst viðkvæmri húðinni. Þau eru laus við hráolíuplast og eru aldrei bleikjuð með klór þannig að Natracare er lífrænt og náttúrulegt val fyrir konur. Með þeim má forðast gerviefni svo sem reion, plastefni á borð við pólýetýlen og pólýprópýlen, klórbleikingarefni sem losa eitruð díoxín, háídræg efni úr jarðolíu, latex og húðertandi efni ásamt íðefnum svo sem ilmefnum og litarefnum sem eru til staðar í svo mörgum öðrum vörum til persónulegrar umhirðu fyrir konur.

Margir kvensjúkdómalæknar hafa ráðlagt konum með viðkvæma húð að nota Natracare bindi til að draga úr snertingu við klórbleikjuð efni og jafnframt vörur sem innihalda gerviefni, latex og háídræg efni úr jarðolíuefnum.

Ár hvert fleygja konur milljörðum dömubinda og innleggja með plasti í. Flest þessara dömubinda eru gerð úr plasti með meira en 90% hráolíu sem heldur áfram að menga jörðina um ókomin ár. Yfirleitt endar plastúrgangur sem landfylling og í heimshöfunum og veldur þannig óafturkræfri sjónmengun og skaða á lífríki sjávar og að endingu fæðukeðjunni.

Með því að velja Natracare ertu að neita að nota plastefni úr hráolíu.

Leitarvél
  • Banner