Natracare brjóstapúðar, bindi fyrir nýbakaðar mæður og barnaþurrkur sem hafa unnið til verðlauna eru sérstaklega hannaðar fyrir nýbakaðar mæður og börn þeirra þar sem einungis eru notuð algjörlega klór- og plastlaus lífræn og náttúruleg innihaldsefni.
Í mörgum vörum á markaði fyrir mæður með börn á brjósti eru gerviefni og háídræg efni sem koma úr jarðolíuiðnaðinum, en það getur haft neikvæð áhrif, bæði á heilsu kvenna og umhverfið.
Á meðgöngu eru konur eðlilega meðvitaðri um heilsuna og hugsa betur um líkamann. Natracare vörur búa yfir hreinleika sem mikilvægt er að konur geti reitt sig á þegar þær eru á þessu æviskeiði.
Margar barnaþurrkur sem víða eru fáanlegar innihalda ertandi froðuefni svo sem natríumlárýl súlfat (SLS), jafnt sem rotvarnarefni svo sem fenoxýetanól sem tengist húðbólgu og paraben, en nýlega hefur verið vakin athygli á að þau geti verið skaðleg heilsunni. Paraben, að meðtöldu metýl-, própýl-, bútýl- og etýlparabeni, eru aðeins hluti af stórum flokki eiturefna, en enginn veit hvaða langtímaáhrif þau kunna að hafa ef þau eru notuð dag hvern næst húðinni.
Mörg íðefni sem mikið eru notuð í barnaþurrkur kalla á svör við spurningunni: Ætti ekki að fara að með meiri gát við notkun á vörum sem innihalda slík íðefni? Vörur sem notaðar eru á húð ungbarna með greiða leið fyrir íðefni inn í líkamann eiga ekki aðeins að vera lausar við framangreind efni, heldur ber einnig að varast própýlen glýkól, pólýetýlen glýkól (PEG), ísóprópýl mýristat og rotvarnarefni sem losa formaldehýð, svo sem ímídazólídínýl þvagefni.