NatraCare

Af hverju Natracare bindi?

Forsíða : Af hverju Natracare? : Af hverju Natracare bindi?

Lífrænt og náttúrulegt eru grundvallarreglur Natracare sem veitir konum þægindi og trausta vörn en lætur sér jafnframt annt um umhverfið.
Bindin eru úr lífrænt vottaðri 100% bómull og náttúrlegum sellulósaefnum sem eiga upptök sín í endurnýtanlegu og sjálfbæru umhverfi og eru meira en 99% visthverf , þ.e. brotna niður í náttúrunni og mynda moltu.

Natracare bindi eru algjörlega klór- og plastlaus og eru eðlilegt val fyrir konur því með þeim má forðast gerviefni svo sem reion, plastefni á borð við pólýetýlen og pólýprópýlen, klórbleikingarefni sem losa eitruð díoxín, háídræg efni úr jarðolíu, latex og húðertandi efni ásamt íðefnum svo sem ilmefnum og litarefnum sem eru til staðar í svo mörgum öðrum vörum til persónulegrar umhirðu fyrir konur.


Þar sem ekki eru allar konur eins og óskir eru mismunandi eru Natracare bindi fáanleg í tegundunum maxi og ultra thin, með eða án vængja.

Margir kvensjúkdómalæknar hafa ráðlagt konum með viðkvæma húð að nota Natracare bindi til að draga úr snertingu við klórbleikjuð efni og líka vörur sem innihalda gerviefni, latex og háídræg efni úr jarðolíu.

Leitarvél
  • Banner