Ungbörn eru sérlega næm fyrir umhverfinu með viðkvæma, næma húð og nýmyndað ónæmiskerfi sem hefur ekki enn náð upp þoli fyrir því álagi og eitri sem líkamar fullorðinna eiga auðvelt með að hrinda frá sér. Þess vegna hefur Natracare hannað barnaþurrkur úr lífrænni bómull sem einungis eru gerðar úr lífrænt vottuðum, nauðsynlegum plöntuolíum og umhverfisvænum innihaldsefnum úr plöntum sem eru væg og mild og visthverf.
Um mörg þeirra íðefna sem útbreidd eru til nota í þurrkur gildir spurningin:
Ættum við ekki að fara að með meiri gát við notkun á vörum sem innihalda slík efni? Því miður er það svo að mörg vinsæl vörumerki sem foreldrar bera skilyrðislaust traust til hafa oft að geyma ertandi froðuefni svo sem natríumlárýl súlfat (SLS), jafnt sem tilbúin rotvarnarefni á borð við fenoxýetanól, SHG og paraben í vörum sínum til umhirðu ungbarna. SLS gerir meiri skaða en gagn þar sem það rífur hlífðarlag húðarinnar af svo eiturefni eiga greiðan aðgang að líkamanum.
Rotvarnarefni þau sem oft er að finna í mörgum vörum til umhirðu ungbarna eru oft merkt sem metýlparaben og própýlparaben, en stundum er hugtakið „fæðuflokksparaben“ líka notað til að reyna að gera paraben ásættanlegri sem innihaldsefni. Það breytir því ekki að þetta eru paraben og varað hefur verið við þeim.
Önnur ertandi innihaldsefni sem oft eru notuð og ætti að forðast til nota á viðkvæma ungbarnahúð eru própýlen glýkól, pólýetýlen glýkól (PEG), ísóprópýl mýristat og rotvarnarefni sem losa formaldehýð, svo sem ímídazólídínýl þvagefni. Margar barnaþurrkur á markaðnum eru gerðar úr gerviefni svo sem pólýprópýleni sem er ekki visthverft eða klórbleikjuðu viskósareioni.