NatraCare

Af hverju Natracare?

Forsíða : Af hverju Natracare?
Nútímakonur eru meðvitaðar um þörfina á að draga úr notkun gerviefna, húðertandi efna og óþarfa íðefna og viðbótarefna næst húðinni og krefjast þæginda, mikilla gæða og öryggis; konur kunna einmitt að meta allar lífrænu og náttúrulegu vörurnar frá Natracare vegna þess að þær eru þægilegar og veita trausta vörn en líka af umhyggju fyrir umhverfinu og vegna ábyrgðar gagnvart því.

Margir kvensjúkdómalæknar hafa ráðlagt konum með viðkvæma húð að nota Natracare til að draga úr snertingu við klórbleikjuð efni og jafnframt vörur sem innihalda gerviefni, latex og háídræg efni úr jarðolíuefnum.

Natracare vörur eru gerðar úr lífrænt vottuðum og náttúrulegum jurtaefnum, án íð- og viðbótarefna, sem eru visthverf og innihalda einungis lífræn og náttúrleg efni sem koma frá framleiðendum með heilsusamlega, lífræna framleiðsluhætti. Við gerum aldrei málamiðlanir þegar gæði og áreiðanleiki eru annars vegar og höldum áfram að beita nútímalegri hugsun við notkun náttúrulegra efna til að ná fram snjöllum og nothæfum lausnum þannig að nafn Natracare megi áfram vera traustsins vert. Við leggjum okkur fram um að bæta heilsu manna og vera umhverfisvæn og erum fylgjandi lífrænum lífsstíl í jafnvægi.

Allar vörur eru algjörlega lausar við klór og konur geta treyst því að Natracare inniheldur engin gerviefni eða viðbótarefni svo sem yfirborðsvirk efni, ilmefni, litarefni eða smurefni. Með því að velja aðeins fullkomlega lífrænt vottaða bómull er ekki hætta á beinum áhrifum af leifum skordýraeiturs, tilbúins áburðar, laufeyða og sveppadeyða sem algengt er að notuð séu við hefðbundna bómullarrækt.

Ár hvert fleygja konur milljörðum dömubinda og innleggja með plasti í. Flest þessara dömubinda eru gerð úr plasti með meira en 90% hráolíu sem heldur áfram að menga jörðina um ókomin ár. Yfirleitt endar plastúrgangur sem landfylling og í heimshöfunum og veldur þannig óafturkræfri sjónmengun og skaða á lífríki sjávar og að endingu fæðukeðjunni. Með því að velja Natracare ertu að neita að nota plastefni úr hráolíu.

Margar blautþurrkur sem víða eru fáanlegar innihalda ertandi froðuefni svo sem natríumlárýl súlfat (SLS), jafnt sem rotvarnarefni svo sem fenoxýetanól sem tengist húðbólgu og paraben, en nýlega hefur verið vakin athygli á að þau geti verið skaðleg heilsunni. Paraben, að meðtöldu metýl-, própýl-, bútýl- og etýlparabeni, eru aðeins hluti af stórum flokki eiturefna, en enginn veit hvaða langtímaáhrif þau kunna að hafa ef þau eru notuð dag hvern næst húðinni. Natracare blautþurrkur úr lífrænni bómull eru hágæða, öruggar og traustar og gerðar úr lífrænt ræktuðum og náttúrulegum innihaldsefnum úr plöntum sem eru laus við ertandi íðefni og eitruð rotvarnarefni.

Leitarvél
  • Banner